We all accept the world which we are presented with.
Leitarbox

01.02.2007 10:44:50 / sprettur

Súludans

Nýjasta æðið í líkamsræktinni er súludans sem á að koma konum í rokform.  Ég var að velta fyrir mér af hverju ekki væri boðið upp á slíkt fyrir karlmenn líka. Þeir hljóta að vera til karlarnir sem hefðu áhuga á slíku námskeiði.  Veit ekki hvort það væri samt sniðugt að kenna konum og körlum á sama námskeiði. Myndi sjálfsagt henta betur að hafa þetta kynjaskipt.  Sjáið þið fyrir ykkur feita og sveitta karla á slíku námskeiði, umkringdir gyðjum á súlum. Þvílík sjónmengun og þvílík sóun á súlum því það vita allir að þeir karlar sem myndu skrá sig á slíkt námskeið væru líklegast bara að leita eftir ódýrri skemmtun.  Svo er það ekkert launungamál að þessi grey eiga oft erfitt með að leyna því hversu illa gefnir og frumstæðir þeir eru og gæti það orðið vandræðalegt í sameiginlegum súlutíma þegar eitthvert dýrið rynni til í eigin slefi og brákaðist á rófubeini.  Þar fyrir utan eiga þeir erfitt með að halda einbeitningunni meðan þeir vaska upp, hvað þá að vefja sig utan um súlu, hálfnaktir og umkringdir glæsilegum og kynþokkafullum konum í eggjandi dansi.  Hrein og bein ávísun á stórslys að mínu mati.  Persónulega held ég að þessi líkamsrækt henti mér ekki og þá kannski vegna þess að nærvera mín myndi sjálfsagt slá flestar konur út af laginu líka.

Sprettur 8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 14:09:28 / sprettur

Teygja teygja teygja

Vorum barnlaus um helgina þar sem Prinsessan var boðin í bústað með ömmu og afa og Skottunni líka.  Fórum í bíó bæði föstudags- og laugardagskvöld að sjá Apocalypto og Blood diamond.  Báðar alveg fantagóðar og mæli eindregið með að fólk láti ekki fram hjá sér fara.

 

 

 

 

 

Æfingar eru hafnar hjá Sprettinum sem þó tekur því rólega og er ekki mikið í lyftingum, en þeim mun meira á brettinu bara í staðinn.  Spangarbúar allir voða kátir með að hafa endurheimt þennan fagra kropp sem nú má berja þar augum eftir langt og strangt hlé.  Eitt sem ég hef alltaf verið alveg óskaplega löt við er að teygja eftir æfingar.  Þegar tímamörkin nálgast þá einhvernveginn dett ég alltaf frekar í að lyfta meira eða hlaupa lengra í stað þess að taka nokkrar góðar teygjur á dýnunni.  Og þó ég sé ógurlega sterk og ægifögur þá er ég nú samt stirð sem staur þegar kemur að því að teygja á mínum fögru limum.  Markmiðið er því að bæta þar úr og vera dugleg í teygjum og togum eftir hverja æfingu og þar sem ég er einstaklega aðlögunarhæf og frábær í flestu, bara svona frá náttúrunnar hendi, þá verð ég ekki lengi að verða kattliðug og mun fara í splitt og flikkflakk niður Fannafoldina eftir nokkrar vikur, sjálfsagt við mikil fagnaðarlæti frá nágrönnum mínum sem nota einmitt hvert tækifæri til að berja kvendið augum og dæsa og andvarpa af aðdáun í hvert sinn (getur samt verið mjög þreytandi líka).  Ég mun skipta mér á milli Lauga- og Spangarbúa næstu vikurnar svo ljóta og óaðlaðandi fólkið getur nú mætt á báða staði svo framarlega sem það er ekki mikið að þvælast fyrir augunum á mér, því slík sjónmengum getur truflað einbeitninguna í teygjunum.

 

Sprettur 8)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 14:53:10 / sprettur

Örvæntið ekki

Ég er svo löt í blogginu núna að ef ég kynni að skammast mín, þá myndi ég gera það núna.

Jæja, minns er farin að geta mætt í ræktina á ný eftir tæplega þriggja vikna hlé vegna bakmeiðsla.  Ætla samt að kalla það íþróttameiðsl héðan í frá, hljómar miklu betur.  Fór með Prinsessuna í Laugar í gær þar sem sú stutta tók netta æfingu í SHOKK salnum á meðan ég fór í mitt prógramm.  Unglingurinn mætti líka svo meirihluti fjölskyldunnar fékk sína hreyfingu í gær. Brjáluð stemning í salnum þar sem ca. 200 upphitunartæki voru öll full og köll og klapp reglulega, þar sem Íslendingar voru að taka Túnismenn í.....

 

Körfubolti hjá Folanum í gærkveldi, Unglingurinn útí bæ að horfa á enska boltann svo við mæðgurnar kúrðum okkur í sjónvarpherberginu og horfðum á okkar vikulegu amerísku lágmenningu, öðru nafni America´s Next Top Model.  Nigel alltaf jafnfallegur, Ms. Jay alltaf jafngay, Twiggy alltaf jafn krúttleg og tútturnar alltaf jafnsætar, en missætar þó ;).

Kíkti örlítið á útsölurnar núna í janúar, keypti smá í Karen Millen, smá í Debenhams og svo ekki meir.  Fór svo einn stuttan hring síðustu helgi og niðurstaðan er sú að 90% af þeim varningi sem eftir er á útsölum er drasl af gömlum lagerum verslanna.  Fann eina skó sem mig langar í og nú er ég að sjálfsögðu búin að sannfæra sjálfa mig um að mig vanti eitt stykki brún stígvél.....en ekki hvað :/  Ég á bara ein hvort eð er, nema maður telji flatbotna stígvél og kúrekastígvél með....þá eru það þrenn pör, af brúnum, og ég held að flestar konur sem eru með eitthvað vit í kollinum myndu halda því fram að það væri fyrir neðan allar hellur og jafnvel hægt að ganga svo langt að segja að það sé frekar fátæklegt að eiga ekki eitt par af brúnum stígvélum í viðbót.  Enda verða svona ógurlegar skutlur eins og ég að eiga nóg af skóm. 

Kíki í Spöngina í dag þegar Prinsessan fer á körfuboltaæfingu.  Verð ekki lengi að koma mér í fullan gang aftur, nú mega Spangarbúar fara að rífa sig upp á rassgatinu og reyna að gera eitthvað í ræktinni, þýðir ekkert að leggjast í leti og þunglyndi þó svo Spretturinn hafi ekki mætt í nokkra daga.  Endalaust álag á manni.

Sprint out


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 09:04:22 / sprettur

Helgin framundan

Í gærkveldi komu saman glæsilegustu og kynþokkafyllstu gleðipinnar landsins heima hjá G-strengnum.  Strengurinn bar fram dýrindis veitingar eins og henni einni er lagið og held að flestar okkar verði vel settar fram á haustið svona matarlega séð, að minnsta kosti tók ég hraustlega til matar míns og borðaði eins og fullvaxin kona.  

Mér þykir nefnilega alveg ógurlega leiðinlegt að gefa konum sem borða eins og fuglar mat, rétt tína í sig nokkra pínulitla bita, horfa svo á diskinn, andvarpa og segjast vera pakksaddar.  Það skal tekið fram að flestar svoleiðis konur eru náttúrulega 110 á hæð og 3 kíló, en það er víst það heitasta í dag.  Nema á tískuvikunni í Milanó, þar þurfa þær víst að vera 4,5 kíló til að fá að vera með.  EN, matarlystin er eitthvað sem alltaf hefur verið í lagi hjá okkur Siglotúttum, enda hlægjum við svo mikið að við verðum að hafa eitthvað til að brenna.

Ennþá hef ég ekki komist á æfingu, en úr því verður bætt í fyrramálið því þá ætla ég að skella mér í Laugar og taka þar létta æfingu hvort sem bakið verður komið í lag eða ekki. Stend ekki í svona vitleysu lengur, andleg heilsa mín er í húfi.

Fegurðarkóngurinn hefur komið með þá yfirlýsingu að hann ætli að höfða skaðabótamál gegn forsvarsmönnum Herra Ísland, þar sem hann telur sig hafa orðið fyrir ærumeiðingum og misst vinnunna vegna þessa máls.  Úff, sá hann einhver í sjónvarpsviðtali í fyrra vegna málsins?  Ég get bara ekki skilið hvernig hann gat stamað út úr sér við einhvern aumingjans lögmann, að hann hafi viljað fara í mál, því miðað við orðaforðann í umræddu viðtali er ég mest hissa á að hann viti hvað “ærumeiðingar” og “skaðabótamál” þýði.  Ætli hann hafi einhvern tímann heyrt svona orð áður, kannski í sjónvarpsþættinum sínum? Sjálfsagt ágætisnáungi strákurinn, en hverjum er ekki sama þótt hann hafi misst þennan titil, enda hallæriskeppni og hallæristitill að bera.

Sprettur fagri8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 13:42:58 / sprettur

Ónýt

Líður svolítið eins og vél í gömlum Willy´s jeppa þessa dagana. Bakið alveg að fara með mig og hef ekkert komist á æfingu í heila 9 daga. Bólaði því örlítið á klínísku þunglyndi hjá Sprettinum, sem helst kom fram í formi súkkulaðiáts og var botninum náð þegar morgunmaturinn í gær var einn pakki af Remi súkkulaði ásamt ískaldri undanrennu.  Mér til varnar verður þó að koma fram að Folinn stökk alsprækur upp úr rúminu til að fara í körfubolta með félögunum eins og alltaf á sunnudagsmorgnum.  Við hlið hans lá hrakið hún ég og vældi yfir eymslum mínum og aumingjaskap sem vonandi sér nú fyrir endann á svona fyrir lok vikunnar að minnsta kosti.

Helgin var annars ágæt þar fyrir utan, Unglingurinn er fluttur í borgina á ný eftir útlegð á haustönn.  Fékk hann inngöngu í þann skóla sem var efst á óskalistanum og mætti í sinn fyrsta tíma núna í morgun.  Prinsessan bíður spennt eftir að fá að mæta á æfingar í Laugum þar sem opnaður verður salur með tækjum fyrir börn á aldrinum 8-14 ára núna í vikunni.  Ógurlega flott og spennó og verður hún án efa fastagestur þar milli körfuboltaæfinga, hún er að minnsta kosti búin að bíða spennt frá því að Folinn tilkynnti að von væri á slíku.  

Við fórum annars í leikhús á laugardaginn sem var alveg ágætt. Átti svolítið erfitt með að sitja kyrr svona þegar fór að líða á leikritið, sökum bakverkja.  Fórum á viltu vinna miljón sem var alveg þokkalegt og hægt að hlægja af.  Eggert Þorleifsson og Laddi voru frábærir í sínum hlutverkum en það sama er ekki endilega hægt að segja um Helgu Brögu. Hún var ágæt framanaf, en þegar kom að því að leika ofurölvi kvenmann þá varð þetta bara vandræðalegt.  Kannski Prinsessunni og hennar vinum hefði þótt þetta fyndið, dónt nó.  Hvaða fullorðna kona steypist á hausinn ofan í sófa, stendur og hoppar í stofustól eins og bjáni, með orðaforða á við 3ja ára gamalt barn og tóninn sömuleiðis, notar gamla vínflösku sem gítar og baular og raular eins og hálfviti.  Ég hef nú séð nokkrar drukknar kellur í gegnum tíðina, en aldrei neitt í líkingu við þetta.  Get ímyndað mér að krakki sem dytti í bjórtunnu myndi kannski sýna svipuð viðbrögð við áfenginu.....þetta var svo ofleikið að það var ekki einu sinni fyndið.

Annars hef ég ákveðið að bjóða mig fram til að leysa David Beckham af í eina viku með LA Galaxy. Þarf sjálfsagt ekki að gera mikið þessa vikuna nema bara leysa út launaávísunina sem er samt ekki nema rétt um 70 millur......Annars held ég að Beckham stigi nú ekkert sérstaklega í vitið, enda leitaði maðurinn ráða hjá Tom Cruise áður en hann ákvað að flytja sig yfir og ekki er sá nú alveg heill í hausnum :/

Spretturinn


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 10:57:37 / sprettur

Nýtt ár

Ég var minnt á um daginn að desember væri löngu kominn og farinn og því væri löngu kominn tími á að ég uppfyllti skyldur mínar hér á vefnum til að koma í veg fyrir frekara tjón á andlegri líðan aðdáenda minna.  En þegar svona eðaltúttur eins og ég eigum í hlut er bara stundum erfitt að sinna þessum skyldum sökum anna í félags- og heimilislífinu svona rétt í árslok.  Spretturinn fékk fullt af góðum gjöfum eins og von var á, enda er maður umkringdur gjafmildum og góðum fjölskyldumeðlimum og vinum.  Folinn hlóð demöntum á Sprettinn eins og sönnum herramanni sæmir.  Börn, systir og foreldrar gerðu einnig afskaplega vel við Sprettinn sem svaraði í sömu mynt og gladdi sitt fólk.  Árinu var svo lokað með tilheyrandi sprengingum og látum hjá Systir og Oddinum.  Fengum lítið að vera í friði með okkar sprengigræjur þar sem nágrannar flykktust út í glugga og götu til að fylgjast með okkur, enda sjaldan sem slíkur fjöldi fegurra kvenna og karla sést í návígi þarna í sveitinni.  Vatnsendabúar eru bara ekki vanir þessháttar uppákomum, enda þarf Systir yfirleitt að yfirgefa hús sitt fyrir allar aldir bara svona til að komast óáreitt til vinnu.  Jú jú, fegurðin, kynþokkinn og gáfurnar eru bara eitthvað sem við systur þurfum að læra að lifa með, en það er ekkert alltaf auðvelt. 

 

 



Á dagskránni er að fara í leikhús á laugardaginn með mágkonu, karli hennar og tengdaforeldrunum.  Ætlunin er að sjá “Viltu finna miljón” sem fólk segir að sé ógurlega skemmtilegt og fyndið.  Mér finnst nefnilega ekkert gaman að fara í leikhús nema það sé skemmtilegt og fyndið.  Við Folinn fórum einu sinni á stykki sem hét “Leitt að hún skyldi vera skækja”.  Ég var ekkert að kynna mér þetta neitt sérstaklega áður en miðarnir voru keyptir, ég meina titilllinn hljómar nú ekkert afskaplega dramatískur eða leiðinlegur, en OMG hvað þetta var ekki skemmtilegt. Ég er kannski svona smituð af lágmenningu sjónvarpsins en leikendur voru þrír, talað var í bundnu máli og fjallaði þetta um systkini sem urðu ástfanginn hvort af öðru og sváfu saman.  Þetta gæti alveg verið fyndið og skemmtilegt en þess í stað var það það mjög leiðinlegt og langdregið. Svona svipað og að fara í rótarfyllingu til tannlæknis.  

 

 



Æfingar hafa setið á hakanum frá því á laugardaginn síðasta þar sem Spretturinn fór eitthvað illa í bakinu og gengur því um eins og skakki turninn í Pisa. Ótrúlegt hvað ég er samt aðlaðandi og brjálæðislega sexý þrátt fyrir þetta skrítna göngulag og kvalafullan svipinn á fögru andlitinu.

 

 



Já, það hefur lítið breyst í lífi Sprettsins frá því síðast.  Allt jafnyndislega fullkomið og skemmtilegt fyrir utan smá ”setback” síðustu daga þar sem ekki hefur verið farið í reglubundnar ferðir í Spöngina og aðdáendur mínir hafa því reitt hár sitt og emjað af andlegum sársauka.

 

 



Hilsen

Sprettur


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.11.2006 09:59:40 / sprettur

Bloggfrí

Verð í bloggfríi fram í desember :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 13:05:22 / sprettur

Helgin

Við mæðgurnar skelltum okkur í jólagjafagírinn um helgina og héldum í slíkan leiðangur. Byrjuðum á því að vera ægilega menningarlegar og fórum á Laugaveginn. Þegar við stigum út úr bílnum fyrir utan Landsbankann frusum við á staðnum sökum mikils kulda. Var því skundað á aðeins meira en meðalhraða beinustu leið á Sólon þar sem við settumst niður og blésum hlýju í kalda lófa og pöntuðum okkur hádegisverð ásamt Stóru stelpunni og Tengdadótturinni, smá viðkoma við Kjörgarð þar sem maður einn sat í þessum nístingskulda og spilaði á harmónikku og fannst Prinsessunni bara sanngjarnt að staldra við og kroppa upp nokkra smápeninga til að skilja eftir handa honum svo hann gæti keypt sér eitthvað heitt að drekka. Eftir ágætis veitingar á Sólon, en hræðilega þjónustu, var farið beinustu leið upp Laugaveginn aftur, í bílinn og keyrt upp í Kringlu eins og annað venjulegt fólk sem ekki vildi frjósa í hel. Okkur tókst að kaupa þrjár og hálfa jólagjöf á laugardaginn og svo heimtaði Prinsessan að við færum aftur á sunndag, sem við og gerðum, þar sem við keyptum svo tvær og hálfa jólagjöf. Talsverður tími fór í að finna stóran vörubil handa einum litlum frænda sem á bara eina jólaósk, s.s. stóran vörubíl. Lítið var um slík ferlíki nema þá í verðflokki sem okkur fannst aðeins fyrir ofan skynsemismörkin, ég meina, hver kaupir plastvörubíl handa fjögurra ára gömlu barni á tæplega sjö þúsund krónur......allavega ekki ég.

Æfingar fengu sinn tíma alla síðustu viku og bæði á laugardag og sunnudag, mun Spretturinn því taka rólegan dag í dag og vera heima hjá sér í haugaleti og aumingjaskap, en taka upp þráðinn seinnipartinn á morgun og mæta fersk í Spöngina þar sem tekið verður á kroppnum innan um allt fallega fólkið sem þar æfir (þetta var spes fyrir þig Júlli :haha: )

Sprettur frostrós 8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 14:49:01 / sprettur

Af unglingum og öðru fólki

Ég tók ógurlega æfingu í gær og var Spöngin full af fólki, misfríðu að sjálfsögðu eins og vanalega.  Fótleggjafegrun var tekin með trompi og er óhætt að segja að sterkari, stæltari og stórfenglegri fótleggi en mína er ekki að finna svo víða, enda fylgja þeir restinni af þessum líka hrikalega flotta kropp sem mér fylgir. Anyway, nenni nú ekki að tíunda það sem allir vita, eina ferðina enn....þarna var ég í mestu makindum í upphitun fyrir ógurlegheitin þegar ég sé útundan mér að á einu hlaupabretti fyrir aftan mig er lítill hobbiti að rembast við að hlaupa á brettinu sem var helmingi stærra en hann sjálfur, enda rétt sá í glókollinn annað slagið þegar hann stökk upp á hlaupunum.  Ég hélt að sjálfsögðu að þarna hefðu skynfærin verið að hrekkja mig eitthvað og hirti því ekki frekar um það þar til upphitun glæsikroppsins var lokið. Varð mér þá aftur litið á umrætt bretti, og viti menn....þarna skoppaðist, eins og álfur, einhver krakkaskítur sem mátti hafa sig allan við að renna ekki bara af brettinu, þar sem hann hefði þá sjálfsagt flogið yfir í hinn enda salarins sökum smæðar.  Stuttu síðar sá ég og heyrði útundan mér að starfsmaður Klassans var að benda föðurfígúru drengsins á þá staðreynd að Klassinn væri ekki barnaheimili, en að honum væri velkomið að setja drenginn sinn, sem var u.þ.b. 8-10 ára gamall, í barnagæsluna á neðri hæðinni ef hann vildi hafa hann með sér á æfingar.  Pabbaskrípið, sem BTW leit svolítið út eins og illa klipptur og ofvaxinn asni með hýjung í ófríðu andlitinu, sagði þá eitthvað í þá áttina að hann vildi sko ekki borga í gæsluna (hundraðkallinn sko) og vildi bara taka strákinn frekar með sér að æfa í staðinn.  Það mátti hann því miður ekki svo hann fór bara heim með grislinginn þar sem þeir feðgar hafa sjálfsagt gert magaæfingar á stofugólfinu fyrir framan barnatíma sjónvarpsins, ægilega sáttir. 

Unglingurinn hefur verið í bænum frá því á föstudag og fer aftur norður í dag með flugi.  Hann hefur verið afskaplega duglegur að sinna þeim hlutum sem unglingar gera yfirleitt mjög vel og leggja mikinn metnað í..... t.d. hefur hann verið úti eingöngu á kvöldin með félögunum, því eins og allir vita eru unglingar með ofnæmi fyrir dagsbirtu og geta því ekki hist utandyra fyrr en eftir að sólin sest. Svo voru ýmsir bráðnauðsynlegir hlutir sem þurfti að sinna í tölvunni, eins og að hlaða niður bíómyndum og spjalla við félagana, sem hann var með úti stuttu áður, á MSN fram á nótt, nú og sofið langt fram á dag til að hvíla sig eftir allt þetta spjall sem getur jú verið ansi slítandi starf til lengdar. Síðast en ekki síst þarf að horfa á eitthvað af þessum bíómyndum og þáttum sem búið er að hlaða niður svo þeir renni ekki út á tíma og verði kannski komið í bíó á klakanum eða eitthvað þaðan af verra.  Annað slagið er svo komið upp til að anda að sér fersku lofti, en samt mest til að fá sér að borða því bensínið klárast jú líka í hægagangi.

 

Spretturinn 8)

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 13:27:28 / sprettur

Vöknuð af værum blundi

Merkilegt hvað ég get verið dugleg. Á föstudaginn var Folinn rekinn út úr húsi með Prinsessuna og fljótlega tóku að streyma að fagrar konur héðan og þaðan af höfuðborgarsvæðinu. Ákveðið hafði verið að við samstarfskonur myndum hittast og elda okkur dýrindismat og eiga góða kvöldstund saman. Þetta gerum við reglulega og höfum þá einhverskonar þema í matargerðinni. Í þetta skiptið ákváðum við að vera með “thanksgiving” dinner. Ógurlegur kalkúnn var sprautaður stútfullur af smjöri og í hann troðið fyllingu þar til út úr flæddi. Með þessu var ýmiskonar góðgæti, allt saman amerískt að uppruna og þrírétta desert til að “loka” þessu mikla matarkvöldi. Á laugardagskvöld varð hlutverkaskipting þar sem Spretturinn og Prinsessan voru send úr húsi þar sem Folinn var með nokkra vinnufélaga í dinner. Helgin endaði svo í gærkvöldi hjá Foreldrunum í humri og kjúklingi. Ekki dónalegir dagar þetta. Nú þarf ég ekki að borða fyrr en á jólunum þar sem ég úðaði svo ægilega í mig um helgina.

Jólin eru að koma svo nú er er byrjað að versla jólagjafir. Prinsessan sagði í gær, alveg í sjokki “mamma, það eru sko bara sex vikur þar til jólin koma, við verðum að fara að kaupa pakka”......okkur hefur tekist að kaupa þrjá slíka, svo nú eru ekki nema 23 eftir :S Hugmyndin er sú að vera búin með allt ekki seinna en 1. desember, nema kannski fyrir grislingana okkar og Folann. Svo þarf að vera með eitthvað sniðugt í skóinn fyrir Prinsessuna og passa að jólasveininn skrópi ekki í gluggamætingum því sú stutta er svo ægilega samviskusöm að fara snemma í háttinn um leið og sá rauði boðar komu sína til stilltra barna. Folann verður að fara senda á veiðar ef fjölskyldan á að fá sína rjúpu á jólunum. Unglingurinn verður líklega lítið heima við í jólafríinu þar sem stefnan er tekin á vinnumarkaðinn þessar þrjár vikur sem fríið er. Líklegast verður það í einhverjum stórmarkaðinum þar sem almúginn og nemendur í jólafríi vinna 29 tíma á sólarhring þegar mest lætur í jólaösinni. Það um að gera að láta þetta lið vinna svolítið fyrir aurunum sem það fær svo útborgað, enda ekki ólíklegt að það hali nú inn hátt í hundraðkallinum fyrir þennan mánuðinn. Búið að berjast svo svakalega fyrir hærri lágmarkslaunum að þetta er að setja bankastjóralauninn úr skorðum. En almúginn hefur ekkert við hærri laun að gera, myndi bara eyða honum í óþarfa vitleysu. Vælinn er svo ógurlegur í almúganum að það heimtar alltaf meira og meira, segist þurfa að lifa eins og aðrir í þjóðfélaginu. Hvaða bull er þetta eiginlega, er ekki nóg að eiga fyrir húsaleigu og mat? Einstaka eyðslukló heimtar kannski hikstalaust að eiga bíl til umráða líka. Yfirgangurinn 8|.

Sprettur jólasveinn 8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.10.2006 11:20:36 / sprettur

Heimskur, heimskari, heimskastur

Sumt fólk er vitlausara en annað og svo eru það þeir sem eru mikið vitlausari en aðrir eða alveg óheyrilega heimskir og þess vegna verðum við kannski að sýna slíku fólki skilning og koma fram við það eins og óvita barn.  Einn af þeim sem á heima í síðarnefnda hópnum er Paul Watson, forseti umhverfissamtakanna Sea Shephard, en hann líkir hvalveiðum Íslendinga við kjarnorkutilraunir Norður Kóreumanna. Er frekari útskýringa þörf??

 

 

 

 

Spretturinn yfir sig hneykslaður á þessu fjaðrafoki yfir 9 hvölum (eða 1.800.000 kjötbollum)


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 14:13:08 / sprettur

Losnaði aðeins um ritstífluna

Renndi í Spöngina í gær og tók kroppinn í gegn með ógurlegum æfingum.  Þar var nú líka aldeilis margt um manninn eins og alltaf er á þessum tíma dagsins. Ég byrjaði á að skella mér á brettið og fletta milli sjónvarpsstöðva þar til ég lenti á einni menningarstöðinni sem hentaði mínum hlaupahraða.  Stuttu síðar kom mér við hlið kona, sem væri ekki í frásögur færandi nema að það truflaði mig svolítið hvað hún var ófríð vesalingurinn.  Ég get ekki skilið af hverju ekki er hægt að takmarka aðgang svona sjónmengunar og leyfa þessu fólki til dæmis að koma á vissum tímum sólarhrings, milli 9 og 11 fyrir hádegi myndi til dæmis henta mér ágætlega. Ekki nóg með að þetta hafi truflað mig á hlaupunum, þurfti þá ekki brjótast út ægileg svitalykt af þessu svokallaða sköpunarverki almættisins sem hljóp mér við hlið.  Guð minn góður, eins og það hafi ekki verið nóg að trufla þessi tvö ubernæmu skynfæri mín svona hrottalega, nei nei.....svitin rann eins og frussandi stórfljót og fór svo að skvettast í allar áttir.  Þá fékk maður sko nóg, enda búið að misbjóða fegurðar- og lyktarskyni mínu svo svakalega að mér lá við yfirliði.  Færði mig því yfir á crosstrainer og kláraði mitt cardio þar, í friði fyrir ófríðu og illa lyktandi fólki sem kann ekki mannasiði.  

Um helgina síðustu skruppum við Folinn á ball sem var haldið á Nordica, þ.e. stjórn Siglfirðingafélagsins hélt þar árshátíð fyrir “gamla” Siglfirðinga nær og fjær.  Ég hef aldrei orðið svo fræg að mæta á slíka samkomu þar sem ég hef alltaf haldið það vera meira fyrir gamla fólkið sem er flutt úr firðinum í borgina og þarf að hitta aðra gamlingja annað slagið svona til að rifja upp gamla og góða tíma þegar öll dýrin í skóginum voru vinir og ekkert verið að rífast í litlu þjóðinni okkar útaf 9 hvalakvikindum sem eru víst of tilfinninganæmir og gáfaðir til að vera étnir, svona til dæmis.  Anyway, við Folinn ákváðum að skella okkur á seinni hlutann, þ.e. ballið, þar sem glæsikvendaklúbbur Sprettsins ásamt mökum og fleiri jafnöldrum ætluðu að mæta og taka tryllta dansa við undirspil Bogomil Font og miljónamæringanna. Kom í ljós að meirihlutinn var nú bara fólk á besta aldri, eða 25-40 ára og gamlar frænkur og ellilífeyrisþegar í minnihluta, enda sjálfsagt að hafa aldurstakmark á svona skemmtanir.  Við skemmtum okkur og öðrum alveg ægilega vel og dönsuðum þar til hljómsveitin söng sitt síðasta.  Merkilegt samt hvað ég og mín fjölskylda, sem og vinir, vorum langflottust, en maður er svosem orðin löngu vanur slíku og kippir sér ekki upp við lofræður og hylli almúgans, ónei J

 

 

Fjölskyldan borðaði kvöldverð fyrir framan sjónvarpið í gær þar sem stórleikur  Barcelona og Chelsea var sýndur á matmálstíma og ekki gátum við misst af slíkum stórleik.  Maður varð að halda með Barcelona þar sem Eiður var að spila (einhver dulin þjóðarrembingur) en þar sem Chelsea er mitt lið í ensku deildinni voru blendnar tilfinningar sem leituðu á Sprettinn þegar úrslitin voru kunn, 1-0 fyrir Chelsea.  Það þykir nú samt ekkert sérstaklega flott að halda með Chelsea í enska boltanum þar sem liðið er byggt upp af rússneskum billjónamæringi með mafíutengsl, but who cares.....Go Chelsea J .

 

Kveð að sinni

Sprettur 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 13:38:51 / sprettur

Stríð og friður :/

Í franska þinginu voru í dag samþykkt lög þar sem gert er að glæp að neita því að Tyrkir hafi framið þjóðarmorð á Armenum á árunum 1915-1917. Einhver tralli innan ESB fordæmir þessi lög þar sem þau muni hafa slæm áhrif á viðræður fyrrnefndra morðingja um inngöngu í sambandið.  Ég er reyndar sammála því að slík lög á ekki að setja, en af öðrum ástæðum.  Mér þykir alveg einstaklega mikil höft á málfrelsi manna ef þeir mega ekki hafa sínar skoðanir á hlutunum (hversu rangt sem þeir hafa fyrir sér).  Það er til að mynda glæpur að halda því fram að helförin hafi aldrei átt sér stað þar sem nasistar undir stjórn Hitlers myrtu miljónir gyðinga og á fólk á hættu að sæta fangelsisvist ef það segir svo opinberlega.  Aftur á móti þykir það bara sjálfsagt mál að gyðingar þessir stálu landi Palestínumanna eftir stríðið, neita að afhenda það aftur, myrða menn, konur og börn miskunnarlaust, en kalla það svo hryðjuverk þegar Palestínumenn svara fyrir sig mig einstaka flugelda og sjálfsmorðsárás.  Þá eru heilu Palestínsku fjölskyldurnar gerðar heimilislausar þar sem jarðýtur ryðja niður hús og híbýli manna handahófskennt að því er virðist, bara svona af því að í dag er þriðjudagur í dag og við drápum ekki nógu marga í gær þá erum við doldið krankí sko.  Ísraelar réðust inn í Líbanon og drápu hundruði ef ekki þúsundir manna og alþjóðasamfélagið gerði ekkert, af því liðsmenn Hesbollah (sem er andspyrnuhreyfing en ekki hryðjuverkasamtök) voru svo djarfir að ræna tveimur ísraelskum hermönnum....TVEIR MENN.  Ísraelar ætla, og eru, að reisa einhvern ógurlegan vegg til að loka Palestínumenn inn því þeim stafar svo mikil hætta af þeim, þeir eiga náttúrulega ekki nógu stóran herafla og nógu margar sprengjur til að útrýma þeim svona á einu bretti og því betra að geyma þá bara alla á sama stað (minnir svolítið á eitthvað sem gert var við eitthvað fólk í einhverju stríði.....) Við skulum endilega leyfa þessu fólki að halda áfram að drepa, pynta, fangelsa og fara illa með Palestínumenn, en fólk verður nú aldeilis passa sig á því að halda því fram að helförin hafi aldrei átt sér stað, úff púff, þá fyrst verða vandræði.

 

 



Ekki misskilja ofangreinda færslu sem svo að ég sé eitthvað hlynnt sjálfsmorðsárásum og á móti gyðingum, hvað þá að ég sé að halda því fram að helförin hafi aldrei átt sér stað.  Ég er bara að benda á þá staðreynd að það hafa fleiri verið drepnir í stríðum en bara gyðingar í seinni heimsstyrjöldinni sem enginn talar um.  Til dæmis voru rúmlega 11.000.000 borgarar í Sovétríkjunum drepnir í WWII á meðan tæplega 6.000.000 gyðinga voru drepnir í helförinni.  Af hverju talar enginn um þessar ellefu miljónir? Og hvað með t.d. fjöldamorðin í Súdan ekki fyrir svo löngu síðan.  Að minnsta kosti sýnist mér Ísraelar ekkert betri en nasistarnir þegar uppi er staðið.  

 

 



Sprettur 8)

» 4 hafa sagt sína skoðun

06.10.2006 14:51:56 / sprettur

Fótbolti....

Alveg er merkilegt hvernig sumum getur tekist að stýra umræðu heils hóps þegar ljóst er að meira en helmingur hópsins hefur ekki áhuga á umræðuefninu.  Í hádeginu á vinnustað Sprettsins er heit fótboltaumræða afskaplega oft í gangi hjá nokkrum karlmönnum sem starfa með mér og er hádegið í dag þar með talið. Persónulega finnst mér allt í lagi að spjalla létt um fótbolta annað slagið, enda horfi ég á HM og einstaka leiki í ensku deildinni og hef gaman af, en þetta getur verið helvíti leiðinlegt svona endalaust að hlusta á umræðu um einhvern leik sem allir horfðu hvort eð er á, þessi leikmaður átti sko ekki að fá aukakast, þessi leikmaður var bara ekki í gírnum osfrv. Þetta er óskaplega fast í hausnum á sumum því þeim tekst meira að segja að snúa heitu slúðri um þjóðþekkta einstaklinga upp í fótboltaspjall því viðkomandi hafði einhverntímann spilað fótbolta með 3. flokki Vals!!!

Að auki eru þeir ekkert sérstaklega spenntir þegar þeir heyra okkur stelpurnar tala um fótbolta, sem ég skil ekki því við vitum nú aldeilis ýmislegt er snýr að boltanum. Fabio Cannavaro er t.d. ótrúlega flottur, ógurlega kynþokkafullur og fallegur með eindæmum og það að hann er frekar lágvaxinn skiptir ekkert svo miklu máli því það sést ekkert á vellinum þegar hann stendur við hliðina á hinum Ítölunum. Ofvaxni álfurinn hann Wayne Rooney er einstaklega óaðlaðandi drengur, smekklaus og kolvitlaus að auki. Calvin Klein auglýsingin með Freddie Ljungberg er alveg brjálæðislega vel gerð og hann er nú ekkert lítið heitur sá sænski.  David Beckham þykir okkur einnig frekar flottur á kroppinn, svo framarlega sem hann talar ekki mikið. Hann er líka alltaf svo töff í tauinu. Rio Ferdinand og Michael Ballack má horfa á sér til skemmtunar þar sem þeir falla alveg í flottustrákafælinn. Ronaldinho er ógurlegt krútt, en þyrfti að heimsækja tannréttingasérfræðing við tækifæri og Ronaldo mætti nú alveg við því að slaka aðeins á í skyndibitanum, hefur bætt aðeins á sig strákurinn. Oliver Kahn þykir ekkert sérstaklega smart í tauinu utan vallarins og þyrfti að leita á náðir stílista áður en hann fer næst út á meðal fólks og þótt svo Zidane sé ekkert endilega svo myndarlegur þá er nú þessi hráa karlmennska sem gerir hann dáldið flottan, allavega í fjarlægð.  Luis Figo þyrfti að koma sér upp góðum skammti af botox, hann er svo ægilega krumpaður greyið og Fernando Torres, OMG hafið þið séð lærin á stráknum.

Ekki svo segja að stelpur hafi ekki vit á fótbolta.

Enn og aftur verð ég að viðurkenna þá staðreynd að ég á það til að detta inn í ameríska lágmenningu þegar kemur að sjónvarpsglápi.  Það sannast best á því að þegar Folinn fer í sinn miðvikudagskörfubolta þá sitjum við mæðgurnar og horfum á America´s Next Top Model, sem súperskvísan Tyra Banks stjórnar.  Stelpurnar verða ómerkilegri, vonlausari og minna í þær varið með hverri þáttaröðinni.  Þeir í Ameríkunni eru kannski orðnir uppiskroppa með flottar stelpur, gæti verið.  Það besta við þættina, eins og ég hef áður sagt, eru síðustu mínúturnar þar sem maður fær að berja Nigel Barker ofurhönk augum og andvarpa örlítið yfir því hvað hann er flottur og svo veitir ekkert af að hafa smá karlmennsku til að vega aðeins upp á móti drottningunni Ms. Jay.    

Í gær fékk ég komment frá gömlum skólafélaga, sem neitar reyndar að ljósta upp nafni sínu en ég mun komast að síðar hver er. Ýmsar minningar frá unglingsárunum spruttu upp í huganum, mismikilvægar en allar mjög skemmtilegar.  Ég var óttalegur villingur á unglingsárunum og mátti minnstu muna að Foreldrarnir enduðu á hæli fyrir vikið, en þau sluppu fyrir horn. Við vinkonurnar vorum náttúrulega flottustu og heitustu stelpurnar in SigloCity, að okkur fannst, og þótti okkur bekkjarfélagarnir margir frekar lúðalegir.  Stelpurnar voru t.d. ekki farnar að mála sig, klæddu sig eins og smástelpur og skrópuðu aldrei í skólanum. Þvílíkt hallærislegt.  Okkur fannst strákarnir í bekknum flestir óttarlegir mömmustrákar og algjörir fábjánar, við umgengumst sko ekki svona litla strákalinga sem voru hvorki farnir að drekka né djamma, voru ekki nógu gamlir til að keyra og eiga bíl svo ekki höfðum við mikil not fyrir þá. Enda vorum við svo þroskaðar sko :/  

 

Sprettur 8)



 





 


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 09:30:30 / sprettur

Það er erfitt að vera ég

Tók þétta æfingu í gær eftir vinnu, 45 mínútur í cardio og lyfti svo hraðhring á eftir þar sem ég tók vel þungt og hvíldi ekki á milli.  Þetta var ógurlega erfitt og því eins gott að ég er í svona góðu formi og ægilega sterk að auki, því meðalmaður (kona) væri löngu liðinn útaf, slík voru tilþrifin. Ansi var nú margt í Spönginni seinnipartinn í gær og eins og alltaf fékk Spretturinn ómælda athygli sökum fegurðar og útgeislunar. Maður er svosem öllu vanur en þetta getur stundum verið þreytandi þegar maður er að reyna að einbeita sér að æfingunni.  Þegar fólk ræður ekki við aðdáunarstunur og gláp er lítið við því að gera en þessir venjulegu verða að skilja að stundum þarf flotta fólkið bara smá breik til að sinna sínu.  Sumir segja að ég sé of upptekin af eigin fegurð og glæsileika en það er bara ekki rétt.  Það er mest annað fólk sem er upptekið af því, helst þá ljóta fólkið sem hefur litla aðra gleði í lífinu.  Enda veit ég að sá sem fann upp orðatiltækið “fegurðin kemur innan frá” var mjög ljótur og óaðlaðandi svo það er ekki hægt að taka mark á því. 

Hittingur mikill verður í Fannafoldinni í kvöld og þá er eins gott að hafa eitthvað gómsætt og huggulegt sem þessar stórfenglegu konur geta tínt í sig og var slíkur unaður undirbúinn í gærkveldi þar sem Spretturinn sauð saman dýrindisveitingar að hætti hússins. Ég er nánast orðlaus yfir eigin ágæti í eldhúsinu.  Alltaf er ég samt jafn furðulostinn yfir því að það skuli vera hægt að safna saman svo mörgum yndisfögrum og elegant konum á einn stað.  Allar eigum við það reyndar sameiginlegt að vera utan að landi, nánar tiltekið SigloCity, og ef ég vissi ekki betur þá hefði ég haldið að það væri bara tölfræðilega ómögulegt að svo mörg glæsikvendi kæmu frá einum og sama staðnum.  Ókosturinn er hins vegar sá að undanfarin 10-20 ár hefur fólksfjölda farið snarfækkandi í þessari annars fínu borg norðan heiða og vísindalegar rannsóknir styðja þá niðurstöðu okkar að bæjarbúar hafa hreinlega gefist upp á lífinu eftir brottflutning kynþokkafyllstu kvenna bæjarins í stórum stíl. Örlítil aðlögun átti sér þó stað þar sem við fluttum ekki allar á sama tíma og var það að beiðni bæjarráðs sem biðlaði til manngæsku okkar. Nú virðist sem fólk hafi misst löngun til að hrúga niður börnum og eru æfingar þar af lútandi einnig á undanhaldi.  Venjulega fólkið, a.k.a. flestir bæjarbúar, sem varð eftir hefur einfaldlega gefist upp eftir að gleðin í lífi þess yfirgaf það miskunnarlaust.  Það bjargar því sem bjargað verður að örfáir ættingjar okkar auðmjúka hóps urðu eftir og reyna nú af mætti að halda uppi fegurðar- og gleðistuðli bæjarbúa mið misgóðum árangri þó.

 

 

Sprettur fagri 8)


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11